....does not enjoy life....
31.12.2008 16:05:32 / eaglehard

Árið 2008

Jæja ansi langt síðan ég hef skrifað eitthvað inn á þetta blogg.. enn fannst það vera komin tími til að skrifa eitthvað örlítið... þó ég láti nú vita af mér annaðslagið á feisinu.. þá á þessi færsla við hér...

Ekkert brjálæðislega margt kanski sem stendur uppúr á þessu ári þannig séð.. fannst þetta ár líða mun hraðar heldur en öll hin áður... Í dag er líka vika í það .. að ég verði 21... úff...

Eeen semsagt árið 2008...

  • Árið mitt byrjaði í London þar sem ég hafði augastað á Big Ben sjálfum.. oog á því kvöldi gerðist nú ýmislegt skemmtilegt.. ég náði að taka mynd af mér í breskum símaklefa sem var víst draumurinn á þeirri stundu.. áttum snilldargóðan tíma á grískum stað, þar sem risa grísk fjölskylda var að skemmta sér.. það var þvílíkt fjör..
  • Eftir London var förinni heitið til Tene.. sem var með einu orði sagt sniiilld.. þar hélt skvísan upp á það að hafa verið til í 20 ár.. á geeeggjuðum Ítölskum veitingastað, Bianco, klikkaðir kolteilar og slíkt..
  • 14.jan var það bara aftur Ísland, og daginn eftir það, beint í vinnu, að vinna með elskunum mínum í Arnardal, Fjörfiskarnir.. ég sakna þeirra nú ansi mikið þessa dagana..
  • Um páskana skellti ég mér svo til Köben í boði tengdó... Hvað getur maður sagt.. Danmörk er bara æðislegt land og Köben æðisleg borg.. djamm
  • Maí mánuðurinn var þvílík peningaeyðsla.. það voru afmæli og afmæli og útskriftir og útskriftir... en gaman var það ;)
  • Í þeim mánuði tók líka við vinnan í Vinnuskólanum.. stelpan tók það að sér að vera Flokkstjóri um sumarið.. og hún sér ekki eftir þeirri ákvörðun ;)
  • Vann með frábæru fólki og frábærum krökkum allt sumarið.. djamm nánast hverja einustu helgi.. gerist vart betra;)
  • Skelti mér nú aðeins í eina útilegu um sumarið, og það var í Húsafell í útilegu fallega fólksins.. það kvöld var stuð... þó skipuleggjendur lét nú ekki allir sjá sig.. ræflar ;)
  • Vikuna fyrir verslunarmannahelgina.. Skelltum við Salli okkur ásamt Helgu og Sturra til grísku eyjunnar Rhodos... það var æææðislegt.. svo fallegt þarna og svo óógeðslega gaman sko!
  • Stuttu eftir heimkomu var það kveðjupartýið hennar Kadýar.. þar sem heimsborgarinn sjálfur ákvað að bæta við listann sinn og skellti sér í búsetu í USA...á nú eftir að kíkja á þá skvísu þangað;) :*
  • Í lok ágústs.. byrjaði greyið ég í Háskóla Reykjavíkur... aftur á skólabekk.. tók smá tíma að venjast.. og líður eiginlega ekki eins og ég hafi vanist enn hehe.. er þar semsagt að rembast við Heilbrigðisverkfræði.. vei..
  • Plúsinn við háskólann er þó fólkið, og þessir vitleysingar sem ég ákvað að kynnast.. Benni og Doddi.. lövley
  • Þar hætti djammið nú ekki.. brjálað að gera nánast allar helgar ;)
  • Djömmin sem standa uppúr eru.. kojan með Stebbaling og partýið heima hjá Dodda og það sem á eftir því fylgdi..
  • Svo var það bara próf í desember..
  • Og í miðjum prófum.. eða rétt áður en próf byrjuðu.. anskotaðist ég til þess að hlusta á Stefán, og skellti mér með honum og fríðu föruneyti í bíó á Twilight.. neih þá var ekki aftur snúið.. þetta var á laugardegi.. og á sunnudeginum strax eftir að heim var komið úr Javabúðum.. þá byrjaði ég að lesa fyrstu bókina í seríunni.. Twilight..
  • Sú bók var kláruð.. sama dag og prófið í forritun var þreytt...
  • Seinni bókin (New Moon) var kláruð.. einn blessaðan laugardag.. þegar mín ákvað að hringja sig inn veika í Efnafræði próf (þó ekki vegna lestur heldur stress)
  • Næstu 2-3 daga eftir prófalok át ég varla né drakk.. þar sem ég kláraði síðustu tvær bækurnar í seríunni.. ég var illa háð.. og er enn held ég..
  • Fann ég bar tilfinningar til THE hotness Robert Pattison.. gæti verið ein þessara gella sem standa 200 m frá honum í þvögu öskrandi "Marry meee marry meee!"
  • Djammið 19.des er ein mesta snilld sem sögur fara af.. hahha Helga á góðan þátt í því;)
  • Jólin voru kósi.. ansi skrítin þó, þar sem við Salli vorum í sitthvoru lagi.. höfðum verið saman um jólin síðustu 3 jól þar á undan.. fékk þó fullt af frábærum gjöfum:D
  • Annan í jólum kvöldið er þó nánast allt í móðu.. enda heit ég því hérmeð að ég og hvítvín eða rósavín eeeigum ekki saman.. ;)
En jæja þá.. enn eitt árið á enda.. enn eitt árið klínist á mig.. hef haft betri ár en þetta var.. een ég get þó ekki beint kvartað..
Takk æðislega allar mínar dásamlegu vinkonur fyrir að vera til og gera öll ár skemmtilegri en þau fyrri.. og auðvitað allir mínir dásamlegu vinir:*:*

Hef nú ekki beint sett mér nein áramótaheit enþá.. en það sem ég ætla að gera betur nú en ég gerði áður er..

  • Standa mig betur í ræktinni
  • standa mig betur í skólanum
  • hitta suma vini oftar
  • setja mér raunhæf markmið og reyna uppfylla þau!
Gleðilegt nýtt ár annars (eftir nokkra tíma) og takk æðislega fyrir það gamla:*

Stelpur, ég ætlast til að hitta ykkir örlítið oftar á því nýja sem er að ganga í garð, ooog ég ætlast til þess að staðið verði við saumóana;) Þið reykjavíkur skvísurnar verðið nú að láta sjá ykkur svo;)

Takk fyrir mig:*

Agla Harðardóttir


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 23:42:49 / eaglehard

Blowjobs mean nothing.. kisses... everything

Vá.. ég er orðin alveg svakalega léleg í þessu blogg dæmi...

Ofboðslega margt fer í gegnum huga minn á daginn.. sem ég gæti mögulega bloggað um.. en svo þegar loks kemur að því að ég sest niður.. logga mig inn á bloggið og ætla að blogga.. þá hef ég eiginlega ekkert að segja...

Er að horfa á stöð tvö þessa stundina einhverja B jafnvel C mynd; Pizza my heart heitir hún. jébb.. það er alls ekkert í sjónvarpinu..

Fór um daginn í íþróttamiðstöðina og ætlaði að reyna kaupa mér skólamiða... á 4400kr, 30 stk. En nei nei það er ekki hægt.. þau byrja ekki að selja þá aftur fyrr en í haust.. þegar skólinn byrjar aftur.. whaat.. hvað ef ég væri í sumarskóla.. er það ekki nógu gott?? en í staðin get ég keypt venjulega miða hjá þeim, í þrek og sund, 30 stk,á 8090kr...
Þó það sé komið sumar er maður nú enn "námsmaður". Var meirað segja með staðfestingu á skólavist í haust með mér.. en nope..

Já talandi um það.. fékk um daginn staðfestingu á skólavist í haust í HR í heilbrigðisverkfræði...
sjitt talandi um það á eftir að senda staðfestingu......

Öhm að öðru... fyrir þá sem ekki vita þá er ég í flokkstjóranum í sumar.. valdi það starf af þremur útaf það er svo illilega vel borgað (kaldhæðni).. sótti reyndar líka um í álverinu fékk það.. en valdi frekar flokkstjóran.. don't ask me why...

Djöfull haaaataf ég digital ísland.. aaalgjört drasl hérna í grundunum! laggar eins og ég veit ekki hvað..

Later

Agla pirrípú


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 19:22:50 / eaglehard

Föstudagur 20.júni árið 2008

Flokkstjórapartí... enn eitt partíið enn eitt djammið....




» 0 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 19:21:53 / eaglehard

Föstudagur 20.júni árið 2008

Flokkstjórapartí... enn eitt partíið enn eitt djammið....

<a href="http://www.explosm.net/comics/52/"><img alt="Cyanide and Happiness, a daily webcomic" src="http://www.flashasylum.com/db/files/Comics/kbeer0001.jpg" border=0></a><br />Cyanide & Happiness @ <a href="http://www.explosm.net">Explosm.net</a> />




» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 22:27:25 / eaglehard

Þessi týpa sem skiptir um lag áður en það klárast...

Jöbb það er ég.. þessi týpa...
En hey.. ég ætla svo aldeilis ekki að láta þessa síðu deyja.. þó að ég bloggi nú ekkert agalega oft.. og aðallega bara svona.. þegar ég hef ekkert annað að gera.. eða þá þegar það er allt brjálað að gera...

Engin próf hjá mér... blendnar tilfinningar varðandi það.. innri nördinn fann smá til..

Ég þrái varla neitt meira en að fara til útlanda... ég bara höndlidekki

Er búin að hugsa rosalega mikið upp á síðkastið um gamla daga.. unglingadeildina og svona..djöfull var gaman að vera "ung"... bara kærulaus og skítsama um allt þannig séð.. lærði nú samt eitthvað heima.. en mikið var það nú ekki.. og tjilla með vinkonum og fleira..

Keyrði framhjá esjunni um daginn.. minnti mig á þegar ég og Helena mættum í esjugöngu með fólki frá DK í Dísel buxum því við bjuggumst við sætum strákum þarna.. hahha.. good times good times...

Tebollu ferðir í bakarí kl. hálf sjö um morgun..

Váá.. og fyrsta trúnóið með Stebba... ég man það.. hahhaha

Ég er víst þessi gella sem fer ansi mikið á "trúnó" í glasi... en þetta hef ég frá mömmu minni víst... mér finnst mun skemmtilegra að spjalla við allan mögulegann.. heldur en að hanga á barnum eða dilla mér... eða tjah... jú...

Óvænt sötr varð á laugardaginn... ábyggilegast eitt skemmtilegasta kvöld sem ég hef upplifað í langan...

Hef miklar væntingar varðandi næsta laugardag.. svo það er einsgott að eitthvað almennilegt gerist... níski vinur minn frá Reykjavík kemur að tjútta... hah.. hann er svo cheap..

Stúlkurnar að útskrifast! Duglegar.. 2 afmæli yfirstaðin.. ein skírn... 3 útskriftir eftir og eitt enn afmæli.. svo er það fleira...

Þangað til næst

Agla sem er dugleg að blogga framvegis.. (geri þetta fyrir ykkur innivinnandi fólkið í sumar sem þarf að hanga við tölvu líkt og ég þurfti að gera.. en enginn bloggaði þá nei.. pfff)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 18:04:18 / eaglehard

Apríl... maí og sumar

Heyja.. var komin með ræpuna að horfa á síðustu færslu. Annars hef ég nú ekkert brjálað að segja frá... Afsaka nú samt hvað það er dálítið langt síðan að ég bloggaði síðast.. en who cares? Bloggið er að deyja út.. eða það má segja að það sé kanski í pásu... Ekki beint í topp 5 hjá mér.

Ætlaði reyndar að koma með statement.. ;
Ég er skotin í Stefán Jóhanni og hann er skotin í mér.. og hananú...
Hann er samt eitthvað meira skotin í mér en ég er í honum held ég.. eða þússt ég er meira skotin og hann er stiginu hærra, semsagt hrifin..

Vildi óska þess að ég gæti skrifað eitthað sniðugt fyrir þig en ég er svo tóm og þunglynd yfir því hvað sumarið er drullu lengi að koma!

Annars var slaufan um helgina.. drullu gaman.. allavega gaman það sem ég man.. heh...afsaka hvað ég var leiðó.. alltaf að endurtaka mig eins og gömul kella.

Stelpurnar að fara að dimmitera á föstudaginn auðvitað mætir maður! Hlakkar til að sjá eitthvað almennilegt..

Mig langar eiginlega ekkert svo að blogga meir.. er að safna kjarki að fara að taka til í herberginu mínu.. jáh enn eina ferðina hugsið þið.. en það eru bara ca. 5 mánuðir síðan hún gerði það síðast?? :O ég veeeit og ég þarf að gera það aftur.. föt útum allt.. meikittiggi

Er búin að þrá þessu huge súkkulaði kökusneið á cafe bleu í kringlunni núna í rúmar 2 vikur... aldrei gefst tími til þess að drulla sér þangað og fá sér.. og svo týpískt loks er ég fer.. þá er hún ekki til..
En hey ég fer í fermingu á fimmtudaginn.. borða eitthvað gott þá

Þangað til næst

Egill

p.s. Stebbi það ert þú sem átt að bjóða mér á deit!



» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 23:57:47 / eaglehard

Strenght.. willpower

Jæææja.. ég er ekki eins góður bloggari og ég var hér forðum.. en þú veist.. ekkert sem ég get gert við því svosem.

Sjitt ég er enþá að venjast því að skrifa að ég sé 20 ára.. krípí að vera orðin svona gömul.. mér fannst katla vera hundgömul þegar hún átti Ylfu, þá aðeins 20 ára.. sjæs..

Annars er endalaust tjill á mér, like always. í 50 prósent vinnu í Arnardal.

Fór út til Köben í páskafríinu.. agalega næs.. hefði samt vilja vera lengur.. náði ekki að túristast neitt þarna fannst mér.

Ahh mig langar svo ógeðslega til sólarlanda.. ég held ég sé að rotna..
úff .. það er svo óótrúlega margt sem mig langar til þess að gera núna..

Er annars búin að sækja um í háskólanum..

Komin með vinnu yfir sumartímann...

Svo það er allt klappað og klárt held ég sko..

Nema, hvert fer ég um verslunarmannahelgina, Eyja?

Ætti ég að skella mér til Akureyrar á söngkeppnina?

Hlakkar óógeðslega til á næstu helgi, Stelpuhittingur. Eins gott að það verði af honum! Haaa stelpur...

Svo er það krílið hennar editar, styttist í það! :D

Og svo vil ég nú óska henni Eddu sætu tilhamingju með fallega prinsinn sinn ;)

Þangað til næst

Agla/Öglí

p.s. I want you


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.03.2008 16:14:40 / eaglehard

Mit privat liv... du aner ikke

Sælar.. vildi bara láta vita af mér, að ég væri ekki aaalveg hætt semsagt...
Mikið búið að gerast undanfarið;), leikritið frumsýnt í gær, gekk vel.. eftir það var frumsýningarpartíið.. gaman þar...

Annars er ekkert mikið að frétta af mér... spá í að skella mér bara í bíó í kvöld.. Stebbi er eitthvað að reyna að plata mig.. langar agalega að sjá step up 2, eða 27 dresses.. einhver sem vill memm?

Er að skrifa hérna í flýti.. eða þússt er ekkert agalega upplögð að fara að blogga einhverja svaka færlsu núna.. er að drífa mig í að fara að tjilla...

En framundan hjá mér er... öhm tjill.. og átak jú... endalaust sökk og svínerí í þessum leikrita bransa... núna tekur heilsusamlegt líferni við...

Þangað til næst...

Tjá tjá...

Öglíið


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 00:39:44 / eaglehard

Youtube Mania

Heyhey.. bloggaði síðustu færsluna mína á myspace.. blogga jafnvel annað slagið þar... myspace/eaglehard.

Er þessa stundina að vafra á netinu, þó aðallega hanga á youtube, og rakst á eina rísandi stjörnu vonandi. Mér finnst hann algjör dúlla og ógeðslega góður. Reyndi við American Idol.

Semur lögin sín sjálfur, og tónlistina.. á píanó...

Josiah Leming heitir drengurinn, 18 ára.

http://youtube.com/watch?v=Lbjc3ypUfO4&feature=related

Þetta finnst mér geggjað flott hjá honum!

http://youtube.com/watch?v=zQX0yhb-kUc&feature=related

Ferðalag krúttsins í American Idol.

Hann er svo "free spirit".. æææðislegt finnst mér...
Ég væri svo til í að þora að vera svona frjáls.. þó það geti nú verið erfitt að vera svona einn kanski.. eins og hann...

En njótið vel..
Sé ykkur afmælisfara á morgun. At moi and Eve.. ;)

Eagle



» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 23:08:17 / eaglehard

Ónefnd færsla

Jájájá ég er víst komin heim, og það er víst dálítið síðan.. 13.jan...Og síðan þá hef ég ekki verið að gera skít!.. sofa til kl. 11 og fleiri svona næs heit...En annars nennin ég ekki að blogga um útskriftarferðina eins og er.. en þið getið skoðað myndir á mæspeisinu; myspace.com/eaglehard... Annars get ég nú sagt það að ferðin var geggjuð.. klikkað gaman, bæði í London og á Tene. Sérstaklega á Tene, því þar gat maður farið í sólbað og svona næsheit. Fólkið var snilld, þakka öllum fyrir frábæra ferð. Eyddi reyndar aaaðeins og miklu, en hey, maður lifir bara einu sinni!

Að öðru... fór aðeins að spá.. langar agalega að fara að breyta til... eftir að sýningum á leikritinu er lokið semsagt; Lita á mér hárið jafnvel dökkt aftur...

Hvað segiði áfram ljóst, eða lita dökkt? eða jafnvel milliveginn, gyllt eða eitthvað þannig...

Þangað til næst...

Agla Harðar

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 20:24:15 / eaglehard

Árið sem er á enda..

Sælar.. heyrðu þar sem ég er mjög líklegast að fara til útlanda á morgun, ákvað ég að taka árið 2007 bloggið bara núna... og afhverju segji ég mjög líklegast, hmm veðrið er brjálað.. ekki hefur verið mikið flogið í dag, en ég vona nú innilega að flugið okkar út til London verði.. svo við náum nú líka flotta áramótamatnum okkar á hótelinu í London....

Eníveis.....

  • Árið byrjaði með áramótaballi, sem var mitt fyrsta ármamótaball, fagnað árinu 2007 sem nú er á enda...
  • Árið 2007 var rooosalega viðburðarríkt ár hjá mér má segja...
  • Strax í janúar hófust æfingar fyrir söngleikinn Almost Famous, þar sem ég sýndi mína, leiklistar-, dans, ooog sönghæfileika... sem var rosalegt hehehhe
  • Ágætt að nefna það að ekki nóg með alla þessa hæfileika þá var ég formaður leiklistarklúbbs á þessum tíma ásamt henni Evu E. bjútíkvín
  • Svo var frumsýning og allt gekk vel, og fljótlega eftir það hófust stífar æfingar fyrir Ungfrú Vesturland...
  • Ungfrú Vesturland 2007 fór svo fram 10. mars... hreppti 3 titla það kvöld ánægð með það.. fékk svo kórónu í kaupbæti sem ég lánaði Evu Laufey.. sú stúlka lifir í blekkingu
  • Eva, Stebbi ætlar að fá hana lánaða næst!
  • Eftir það hófst rooosalegt át tímabil, eftir hor-tímabilið semsagt...
  • Svo voru tvær auka sýningar af Almost Famous..
  • Önnin var mjög strembin
  • í maí, akkurat í miðjum prófum hófust svo STÍFAR æfingar fyrir Ungfrú Ísland...dásamlegt það... einkunnir á prófum eru því ekki frásögu færandi...
  • En í UngÍs kynntumst ég Fríða, og Helena frábærum stelpum!
  • Og ég græddi geggjaða myndavél;)
  • Sumarið tók við... og einnig gerði vinnan það
  • ég tók að mér starf sem gjaldkeri Sparisjóðs Akraness.. mjög gaman það
  • Við fjölskyldan fórum í okkar fyrsta sólarlandafrí saman.. til Calpe..
  • Ég fór til Akureyrar um Versló...
  • Síðasta önnin mín í FVA gekk í garð..
  • Þann 21.desember 2007 fékk ég svo afhent stúdentsprófið mitt ásamt gylltri 1000 og 1 nótt bók á ensku fyrir góðan árangur í ensku og dönsku...

Jáh.. helvíti viðburðarríkt ár.. mjög sátt með árið.. trúi bara ekki öllu því sem ég hef komið fyrir á einu ári...

Flott að nefna það líka að í byrjun síðasta árs endurheimti ég nú elskuna hana Helenu aftur upp á skaga... enn nú er sú stúlku flutt aftur upp í sveit.. meiri durgurinn... Helena þú ert með einu orði lýst BEILER hehe ;) En samt æði..

Árið 2007 einkenndist semsagt af nýjum vinum, gömlum vinum, æðislegum vinum yfirleitt... helling af krílum að hreiðra um sig í bumbum.. rauðhærðum gaurum sem strokast út af VIP vinalista.. hmm... oooog svo margt fleira

Nú ætla ég að ljúka árinu 2007 19 ára á leið til London-Tenerife, kem svo heim á árinu 2008, 13. janúar orðin 20 ára. Sms á afmælisdaginn (7.jan) eru vinsamlegast afþökkuð þar sem ég verð úti á Tene, og á ekki efni á að borga öll þessi sms.. Frekar bendi ég ykkur á að henda á mig kveðju á Mæspeis, eða kommenta hér á blogginu...

Mæspeis slóðin ; www.myspace.com/eaglehard

Takk fyrir mig... sé ykkur fersk á nýju ári...

Love

Agla Harðardóttir a.k.a. (jú know;))


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 23:51:43 / eaglehard

Music sets the mood...

Óle óle... ég er búin í prófum... sem þýðir að ég er búin í framhaldsskóla í bili allavega hehe... í næstu viku þá er það útskriftin... hlakka frekar mikið til... svo eru jólin... sjibbííí

Og eftir 2 vikur og 4 daga þá er ég á leið til London-Tenerife

Fór í tvö próf, var í fjórum áföngum.. gekk svona ágætlega bara... búin að fá tvær einkannir í hús.. og þær hljóma vel sko... En er reyndar að spá í að fara í skólann eftir áramót að taka stæ 603 ef það kemst inn í töflu þ.e.a.s. Hver vill memm??? 

En jæja.. hef ekkert að segja í blikinu... blogga almennilega á næstu dögum... en gerði núverandi nýtt...

 

Kv.

Agla 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 23:19:33 / eaglehard

Þriðjudagur 27.nóv.

Þrír dagar eftir af framhaldsskólagönguminni.... og svo koma próf..... ég er í tveimur prófum... átti reyndar bara vera í einu, en er svo í tveimur vegna fjarnámsáfanga sem ég er í....

Mig langar ekki að þroskast og þurfa að vera rótsvöl og klár og skella mér í háskólagírinn...

Ég ætla reyndar ekki að fara í háskólann eftir áramót strax, ætla ekki fyrr en í haust... og hvað er það sem ég ætla að læra?

Veistu ég er ekki alveg búin að ákveða það, en þessa stundina langar mig frekar mikið í verkfræði, eitthvað tengt rafmagni, já rafmagni, eða heilbrigðis verkfræði

Ég ætla mjög líklegast í HR.... en þetta segji ég núna, í nóvember 2007, Guð má vita hvað ég er að hugsa í júni 2008...

En hvernig dettur mér í hug að fara í verkfræði þegar ég er ekki stæ sjení? Tjha því þetta er það skemmtilegasta sem ég get ýmindað mér að falla í af öllu því sem boðið er upp á í Háskóla. jáh ég hef svo sannarlega trú á sjálfri mér...

Eníveis... Síðasta vika var mjög busy og skemmtileg... Laugardaginn 17.nóv skellti ég mér á ball... og til þeirra sem sáu mig... so sorry þið...ég var ógeð... sunnudagurinn var ekki svo hress dagur... veikindi og þynnka voru að hrjá mig... og út alla vikuna bara...

Á miðvikudeginum hefði ég getað skellt mér á Hr. Ísland, en ákvað frekar að taka mjög stutta dimmisjón æfingu... svo var það brúnka, klipping og pakkinn..

Föstudagurinn, vaknaði um 5.30, skellti mér í gallan og tók til allt draslið, fór heim til Fríðu og hitti allan mannskapinn, fórum á vistina með læti, niðrí skóla, morgunmat þar, æfing, og svo sjóvið... ég kom ekki mikið við sögu, sem var ágætt... er að reyna að róa mig í athyglissýkinni...hádegismatur, RVK

Fórum í Laser Tag, við stelpurnar kepptum sér, ég lenti í 10 sæti af 12... haha geggjað góð ég veit.... en hinsvegar skaut ég aðeins 400 og eitthvað sinnum og Guðrun Selma 1400 sinnum eða eitthvað... týndist þarna inni í dágóðan tíma... svona byssó skelfa mig líka svo, verð svo stressuð... en eníveis, ég var held ég með hæstu prósentuna í hitni hehe ..

Kringlan étið og sprellað smá

Keila, lame ass keiluhöll!!!

Partey á Breiðinni... það var geggjað gaman...

Ball, geggjað gaman, Jói og gaurar stóðu án efa fyrir sínu, og hvað gerði ég svo eftir þennan stranga dag, já ég útskriftarneminn sem var að dimmitera, TÓK TIL EFTIR BALLIÐ, já hversvegna, því leimaða fólkið sá sér ekki fært að mæta...JESS

Borga útskriftarferðina í vikunni, er að fara út eftir mánuð... jólin eftir 27 daga....

Takk æðislega fyrir óógeðslega skemmtilegan dag á föstudaginn allir, kynntist fullt af frábæru fólki! :) Þið eruð öll æði.

Jæja, orðið gott

Annars er ég búin að gera óskalista og er hann hér í aðalvalmynd... þetta er semsagt fyrir þá heppnu, útskriftargjöf, 21, eða 22.des, jólagjöf 24.des, og afmælis 7.jan (20 ára ég, stóra stelpan) (eða eftir að ég kem heim 13.jan)

Later

Agla, bara agla, sem vill ekki fara í Háskóla strax og verða fullorðin...!

P.S. Komnar myndir á mæspeisið endilega kíkja... set það kanski hérna í linka svo ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 13:15:16 / eaglehard

Ei verri en Stebbi

Sæl, ætlaði bara að láta vita að það kemur ný færsla innan skamms, skrifaði reyndar 2x færslu um daginn en b.c. vildi ei birta hana jeijj... en annars eru komnar myndir á mæspeisið mitt /eaglehard, frá Calpe og Dimmiteringunni á föstudaginn....

Færsla innan skamms... en stebbi er verri í þessu en ég... þykist vera að læra... pfff...


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 18:47:50 / eaglehard

Jeah jeah jeah

Djöfull er ég ósátt við ykkur fólkið sem les þetta blogg.... Ekki eitt einasta komment... ég á ekki til orð... og líklegast þið ekki heldur....meira...

En jáh tónlistarkeppnin og allt það vesen var á föstudaginn, Bláa liðið, semsagt liðið mitt og Fríðu, lenti í 3. sæti held ég alveg örugglega... ágætis árangur.. en við hefðum geta gert betur:)

Ballið var svosem fínt.. skrítið samt að vera á Breiðinni og ekki vera á Breiðarballi.. en það breytis nú á næstu dögum... ætla ekki allir að mæta á Breiðina 17.nóv?!

Heyrðu fór svo aðeins að spá, það eru;

 

  • 19 dagar í Jólaballið og Dimmiteringu útskriftarnemanna, þar á meðal Moi:D (23.nóv)
  • 47 dagar í Útskriftar athöfnina sjálfa (presents), mjög líklegast 48 dagar í úskriftarteiti..(21. og 22.des)
  • 50 dagar til jóla, aðfangadags,meiri presents
  • 57 dagar í að flogið verður til London-Tenerife í útskriftarferð (31.des)
  • 2 mánuðir og 3 dagar í tvítugsafmælið mitt, 7.janúar...

En ekki örvænti með gjafakaup, ég verð ekki komin á klakann fyrr en 13.janúar;)

og jafnvel veislan verði haldin 19.jan.. sjáum nú til með það samt :)

En þangað til næst... Og kommentið nú...

 

Agla

 

P.s. Drullusátt með úrslitin á föstudaginn.. þau voru drullugóð og áttu sigurinn fyllilega skilið!!

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15